Fótbolti

Barcelona aftur á sigurbraut

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alexis Sanchez fagnar í leiknum í kvöld.
Alexis Sanchez fagnar í leiknum í kvöld. Nordic Photos / AFP
Alexis Sanchez skoraði tvívegis þegar að Börsungar komu sér aftur á sigurbraut í spænsku úrvalsdeildinn í kvöld með 4-0 sigri á Rayo Vallecano.

Barcelona tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu er liðið mætti Madrídarliðinu Getafe um helgina.

Sanchez skoraði fyrstu tvö mörk Barcelona í kvöld og David Villa bætti því þriðja við áður en fyrri hálfleik lauk. Lionel Messi bætti svo fjórða markinu snemma í síðari hálfleik og þar við sat.

Barcelona er nú þremur stigum á eftir toppliði Real Madrid sem á þó leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×