Sport

Barcelona sagt ætla bjóða í Gareth Bale

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Enskir fjölmiðlar fjalla um áhuga Barcelona á velska kantmanninum Gareth Bale, leikmanni Tottenham. Er félagið sagt reiðubúið að leggja fram tilboð í kappann upp á 35 milljónir punda.

Albert Valentine, aðalnjósnari Barcelona, fyldist með leik Fulham og Tottenham á sunnudaginn þar sem Bale skoraði eitt marka sinna manna í 3-1 sigri.

Bale er samningsbundinn Tottenham til 2015 en félagið hefur áður sýnt að það er reiðubúið að berjast fyrir að halda sínum bestu leikmönnum. Chelsea mun hafa boðið 40 milljónir punda í Luka Modric í sumar, og vildi kappinn ólmur fara, en var því hafnað.

Fullyrt er að Guardiola hafi í huga að nota Bale sem sókndjarfan vinstri bakvörð í staðinn fyrir þá Eric Abidal, Maxwell og Adriano sem allir hafa leyst þá stöðu hjá Börsungum undanfarin misseri.

Dani Alves hefur leyst það hlutverk hægra megin hjá Barcelona og ljóst að með Bale á vinstri kantinum myndi sóknarþungi Barcelona, sem var þó mikill fyrir, aukast enn meira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×