Fótbolti

Mourinho óttast ekki að velja á milli Higuain og Benzema

Higuain og Benzema eru báðir í toppformi.
Higuain og Benzema eru báðir í toppformi.
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, er afar ánægður hvernig honum hefur tekist að dreifa leikjaálaginu í vetur. Til að mynda hefur hann skipst á að spila framherjunuum Karim Benzema og Gonzalo Higuain.

Mourinho gerir sér þó grein fyrir því að fyrr eða síðar þarf hann að velja á milli þeirra í stóru leikjunum og hann óttast ekkert að taka erfiðar ákvarðanir í þeim efnum.

Higuain er búinn að skora 9 mörk í 13 leikjum en Benzema hefur skorað 6 í 11.

"Það er gott fyrir liðið og leikmennina að geta dreift álaginu. Báðir þessir leikmenn eru í toppformi. Það kemur örugglega að því að ég þarf að velja á milli þeirra og það verður ekkert vandamál," sagði Mourinho.

"Það er samt jafnvægi í liðinu í dag og allir að spila vel. Ég hef rætt málin við þá báða og þeir eru meðvitaður um stöðu mála. Þeir hafa ekki yfir neinu að kvarta."

Real Madrid mætir Lyon í Meistaradeildinni í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×