Fótbolti

Annað tap Levante í röð

Leikmenn Valencia fögnuðu í kvöld.
Leikmenn Valencia fögnuðu í kvöld.
Það er smám saman að fjara undan Öskubuskuævintýri smáliðsins Levante. Það tapaði í kvöld sínum öðrum leik í röð.

Levante fékk þá Valencia í heimsókn og varð að sætta sig við 0-2 tap. Javi Venta skoraði sjálfsmark um miðjan fyrri hálfleik en Alberto Costa kláraði leikinn á 50. mínútu.

Levante tapaði ekki fyrstu níu leikjum sínum en nú er róðurinn að þyngjast. Valencia stökk upp í þriðja sætið með sigrinum en Levante er í því fjórða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×