Fótbolti

Di Maria frá í mánuð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Angel di Maria fagnar marki í leik með Real Madrid.
Angel di Maria fagnar marki í leik með Real Madrid. Nordic Photos / Getty Images
Angel Di Maria, leikmaður Real Madrid, verður frá næsta mánuðinn og missir til að mynda af næstu leikjum argentínska landsliðsins í undankeppni HM 2014.

Di Maria tognaði aftan á læri þegar að Real vann 7-1 sigur á Osasuna í gær en hann var tekinn af velli eftir að hann meiddist snemma í seinni hálfleiki.

Hann hafði þá lagt upp þrjú fyrstu mörk Real í leiknum og missir af leikjum Argentínu gegn bæði Bólivíu og Kólumbíu um helgina.

Óvíst er hvort hann verði orðinn klár í slaginn þegar Real Madrid mætir Barcelona á heimavelli eftir rúman mánuð en þess leiks er eins og ávallt beðið með mikilli eftirvæntingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×