Fótbolti

Ronaldo sendi óvart kærustunni og vinunum nektarmyndir af aðdáanda

Irina er vön því að annað kvenfólk reyni við Ronaldo.
Irina er vön því að annað kvenfólk reyni við Ronaldo.
Það er ekki bara Bjarni Harðarson, fyrrum þingmaður, sem er í vandræðum með tölvupóstinn sinn. Portúgalinn Cristiano Ronaldo lenti nefnilega í því að senda óvart öllum vinum sínum nektarmyndir af hollenskum aðdáanda.

Þessi hollenska stúlka hafði komist yfir tölvupóstfangið hans Ronaldo og sendi honum nokkrar léttar nektarmyndir af sér.

Þegar Ronaldo ætlaði að eyða póstinum sendi hann póstinn óvart á öll þau tölvupóstföng sem hann var með í skránni hjá sér. Vinir hans hafa síðan hringt hver á fætur öðrum og vilja útskýringar á því af hverju hann sé að senda þeim nektarmyndir. Ekki eru þó allir að kvarta.

Það sem meira er þá fóru myndirnar líka til kærustu hans, fyrirsætunni Irinu Shayk.

Shayk ku ekki vera að kippa sér upp við mistökin en Ronaldo er sagður skammast sín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×