Fótbolti

Ronaldo: Real er með besta leikmannahóp heims

Cristiano Ronaldo segist ekki vera í nokkrum vafa um að Real Madrid sé með besta leikmannahóp heims þessa dagana. Portúgalinn segir að gæðin í leikmannahópnum séu þess valdandi að hann vilji bæta sig enn frekar sem leikmaður.

"Þetta er besti hópurinn í heiminum. Sjálfur vil ég alltaf bæta mig á hverju ári og hjá þessu félagi get ég það," sagði Ronaldo.

"Allir atvinnumenn eru hæfileikaríkir en menn verða ekki frábærir nema þeir æfi með frábærum mönnum. Þess vegna er mikilvægt að æfa vel.

"Ég átti aldrei nein sérstök átrúnaðargoð þegar ég var ungur. Ég vildi spila fyrir landsliðið."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×