Fótbolti

Ronaldo: Fólk elskar að horfa á mig spila

Það gustar um Portúgalann Cristiano Ronaldo sem fyrr. Hann er umdeildur knattspyrnumaður sem reglulega má þola að baulað sé á hann. Sjálfur er hann þó sannfærður um að fólk elski að horfa á hann spila fótbolta.

Í september var baulað á hann í landsleik gegn Kýpur og kölluðu áhorfendur Messi. Ronaldo hefur nú loks tjáð sig um atvikið.

"Þetta er óeðlilegt atvik og mér er alveg sama um það. Ég held að allir sem njóti þess að horfa á fótbolta séu ánægðir er Cristiano Ronaldo spilar fótbolta," sagði Portúgalinn sem farinn er að tala um sjálfan sig í þriðju persónu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×