Breivik losnar úr einangrun á mánudag 13. október 2011 12:11 mynd/AFP
Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik losnar úr einangrun á mánudaginn kemur en hann hefur verið í einangrunarklefa í 87 daga, eða frá því hann var handtekinn á Útey eftir að hafa myrt 69 manns. Á blaðamannafundi sem haldinn var í morgun í Noregi kom fram hjá lögreglu að hún gerði ekki athugasemdir við að dómari skuli hafa úrskurðað að Breivik ætti ekki að vera áfram í einangrun. Þótt hann losni úr einangrun þarf hann þó að beygja sig undir strangar reglur. Hann fær ekki að tjá sig við fjölmiðla og getur ekki haft samband við fólk utan fangelsismúranna. Þá verður hann í litlu sem engu samneyti við aðra fanga enda óttast lögreglan um öryggi hans. Breivik hleypti að minnsta kosti af 186 skotum á meðan á árás hans í Útey stóð en í valnum lágu 69 manns þegar yfir lauk. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var í Noregi í dag þar sem lögreglan fór yfir rannsókn málsins og stöðu þess. Enn hefur ekkert verið ákveðið um hvenær eiginleg réttarhöld hefjast yfir Breivik en markmiðið er að þau geti hafist fyrir sumarbyrjun á næsta ári. Lögreglan segist enn þeirrar skoðunar að Breivik hafi verið einn að verki og hafa engar vísbendingar borist um að hann hafi átt sér vitorðsmenn. Það er þó enn til ítarlegrar skoðunar. Sérfræðingar hafa síðustu mánuði fínkemmt svæðið á Útey og meðal annars fundið 186 skothylki sem hleypt hafði verið af. Þá hafa fundist fjölmörg ónotuð skot en lögreglan vill ekki gefa upp fjölda þeirra að svo stöddu.
Hryðjuverk í Útey Noregur Mest lesið „Búið að leggja upp dauðafæri fyrir Donald Trump“ Erlent Kallaði Trump „Hitler Ameríku“ og studdi Never Trump-hreyfinguna Erlent „Litu bara á þetta eins og hefði verið keyrt á kind“ Innlent Betlari til leiðinda í miðbænum Innlent Ætlar að áfrýja til Landsréttar Innlent Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Innlent Lík Jay Slater fundið Erlent Íslendingur fannst látinn á Spáni Innlent Stáli fyljar merar enn á fullu 26 vetra gamall Innlent J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Erlent Fleiri fréttir „Búið að leggja upp dauðafæri fyrir Donald Trump“ Kallaði Trump „Hitler Ameríku“ og studdi Never Trump-hreyfinguna J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Leyniskjalamáli Trump vísað frá dómi Fulltrúar Hamas og Fatah funda í Kína í næstu viku Hringurinn þrengist í leitinni að varaforsetaefni Lík Jay Slater fundið Kallas segir af sér vegna nýja starfsins Raðmorðingi játar að hafa myrt allt að 42 konur Katrínu tekið fagnandi á Wimbledon „Ég ætti að vera dauður“ Tæki 100 flutningabifreiðar 15 ár að flytja húsarústirnar á brott Ávarpaði þjóðina og hvatti menn til að „kæla“ orðræðuna Ástand hinna særðu sagt stöðugt Íslenskir ráðamenn verið skammaðir fyrir að senda Trump batakveðju Hinn látni slökkviliðsmaður sem fórnaði sér fyrir fjölskylduna Fundu sprengjur í bíl og á heimili árásarmannsins „Við viljum heim þar sem ástin sigrar“ Ótrúleg mynd virðist sýna kúlu fljúga fram hjá Trump Árásin komi til með að auka stuðning við Trump „Bandaríkjamenn krefjast svara um morðtilræðið“ Segir Guð hafa bjargað sér Bjarni segir atburði gærkvöldsins átakanlega Svona var vettvangur árásarinnar Musk styður Trump Grunaður árásarmaður hét Thomas Matthew Crooks Leiddur blóðugur af kosningafundi eftir skotárás Fannst á lífi eftir tvo sólarhringa neðanjarðar Umfangsmikil árás á Gasa talin hafa banað minnst 71 Maður handtekinn vegna líkamsleifa í ferðatösku Sjá meira