Fótbolti

Svitatreyjum Barcelona hent inn í geymslu

Messi í treyjunni umdeildu.
Messi í treyjunni umdeildu.
Barcelona hefur staðfest að leikmenn liðsins muni klæðast búningum úr nýju efni í kvöld. Svitabúningarnir ógurlegu eru því farnir inn í geymslu.

Leikmenn Barcelona kvörtuðu mikið yfir treyjunum sem drógu í sig allan svita og festust á líkama leikmanna.

Nike hefur nú ákveðið að hysja upp um sig og skaffa besta knattspyrnuliði heims almennilegar treyjur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×