Fótbolti

Mourinho: Hópurinn er klár

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mourinho.
Mourinho. Mynd. / Getty Images
Knattspyrnustjóri Real Madrid,  Jose Mourinho,  segir að leikmannahópurinn sér tilbúinn fyrir komandi átök í spænsku deildinni.

Real Madrid mætir Barcelona í fyrri leik liðinna um spænska ofurbikarinn í kvöld.

Mourinho hefur fest kaup á Hamit Altintop, Jose Maria Callejon, Fabio Coentrao, Nuri Sahin og Raphael Varane í sumar. Portúgalinn telur því að liðið sé nægilega gott til að vinna titla á næsta tímabili.

„Ég vill ekki missa neinn frá félaginu og ég þarf ekki fleiri leikmenn til að styrkja liðið,“ sagði Mourinho við spænska fjölmiðla.

„Þessi hópur hefur náð að æfa vel og spilað sjö æfingaleiki í sumar, en það hefur slípað liðið nægilega vel saman, við erum klárir fyrir næsta tímabil“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×