Fótbolti

Sölvi skoraði í bæði mörkin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sölvi Geir í leiknum í kvöld.
Sölvi Geir í leiknum í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Sölvi Geir Ottesen skoraði eina mark sinna manna í FC Kaupmannahöfn sem tapaði fyrir tékkneska liðinu Viktoria Plzen í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Sölvi skoraði reyndar sjálfsmark á 52. mínútu sem var fyrsta mark leiksins. Tékkarnir komust svo í 2-0 áður en Sölvi náði að jafna. Sölvi lék allan leikinn en Ragnar Sigurðsson var á meðal varamanna FCK.

Útlitið er því dökkt hjá FCK en liðin eiga eftir að mætast í Tékklandi í næstu viku. Sigurvegarinn kemst í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.

Sölvi Geir var hetja FCK á síðasta tímabili er hann tryggði sínum mönnum sæti á norska liðinu Rosenborg og þar með liðinu sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. FCK komst á endanum í 16-liða úrslit keppnininar.

Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign FC Kaupmannahafnar og Viktoria Plzen í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×