Fótbolti

Bæjarar í góðum málum í Meistaradeildinni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arjen Robben skoraði í kvöld.
Arjen Robben skoraði í kvöld. Nordic Photos / Bongarts
Bayern München vann í kvöld 2-0 sigur á FC Zürich í fyrri leik liðanna í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Bastian Schweinsteiger og Arjen Robben skoruðu mörk liðsins í kvöld.

Mathieu Beda, leikmaður FC Zürich, fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiksins og verður því í banni þegar liðin mætast aftur í næstu viku. Sigurvegari rimmunnar kemst áfram í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Alls fóru fimm leikir fram í forkeppninni í kvöld og voru þeir í beinni lýsingu hér á Vísi. Hér fyrir neðan má smella á leikina til að sjá markaskorara kvöldsins.

Úrslit:

Bayern München - FC Zürich 2-0

Dinamo Zagreb - Malmö FF 4-1

OB - Villarreal 1-0

Maccabi Haifa - Racing Genk 2-1

Wisla Krakow - APOEL Nicosia 1-0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×