Læknir Tiger Woods játar sök í lyfjahneykslismáli Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. júlí 2011 13:00 Woods hefur neitað því að hafa notað ólögleg lyf til þess að bæta frammistöðu sína. Nordic Photos/AFP
Kanadíski læknirnir Anthony Galea hefur játað að hafa smyglað ólöglegum lyfjum til Bandaríkjanna. Galea sem starfar í Toronto í Kanada hefur haft íþróttamenn á borð við Tiger Woods og hafnarboltastjörnuna Alex Rodriguez á sínum snærum. Játning Galea hefur það í för með sér að ekki verður réttað yfir lækninum. Hefðu réttarhöld farið fram er talið líklegt að ljóstrað hefði verið upp um alla íþróttamennina sem Galea hefur haft í sinni umsjá. Saknsóknari í Buffalo í Bandaríkjunum hefur þó gefið upp að meðal þeirra séu golfarar, atvinnumenn í hafnabolta og leikmenn í amerískum fótbolta. Talið er að Galea hafi haft um 20 atvinnumenn á sínum snærum á árunum 2007-2009. Yfirvöld í Kanada og Bandaríkjunum hafa fylgst náið með Galea síðan í september 2009 þegar aðstoðarkona hans, Mary Anne Catalano, var gripinn á landamærunum í Buffalo með ólögleg lyf. Talið er að Galea hljóti tveggja ára fangelsisdóm. BBC greindi frá.
Erlendar Golf Mest lesið Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Handbolti Varð fyrir eldingu í fótboltaleik en myndbandið er ekki fyrir viðkvæma Fótbolti „Myndu halda að ég væri nýr Ferguson“ Enski boltinn Ljótt brot á Arnóri: „Enginn annar hefði spilað með þessa verki“ Fótbolti Dauðvona maður kláraði heilan járnkarl Sport Dagskráin í dag: Liverpool mætir þýsku meisturunum og nýr stjóri Man. Utd mætir Man. City Sport Meiddur Ödegaard gifti sig í leyni Enski boltinn Sá langelsti stóð upp úr í Suðurlandsslag Körfubolti Líst ekkert á að fertug Vonn snúi aftur: „Ég myndi dauðskammast mín“ Sport Íslandshrellir bjargaði Fulham með ótrúlegum hætti Enski boltinn Fleiri fréttir Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira