Fótbolti

Real Madrid meðal þeirra liða sem vilja fá Neymar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Neymar.
Neymar.
Það er hart barist um þjónustu Brasilíumannsins unga, Neymar, þessa dagana. Félag hans, Santos, er þó bjartsýnt á að leikmaðurinn verði áfram í Brasilíu.

"Það er ekki bara Real Madrid sem er búið að hafa samband heldur fjöldi liða í Evrópu. Það kemur ekkert á óvart," sagði Luis Ribeiro, forseti Santos.

"Ef eitthvað félag greiðir 45 milljónir evra fyrir hann og hann vill fara er ekkert sem við getum gert. Ég held samt að leikmaðurinn vilji vera áfram hjá okkur."

Santos mun ekki leyfa neinum félögum að ræða við leikmanninn sjálfan strax.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×