Fótbolti

Ónýti bikarinn settur á safn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bikarinn er í henglum eins og sjá má.
Bikarinn er í henglum eins og sjá má.
Sergio Ramos tókst að eyðileggja bikarinn sem Real Madrid fékk fyrir sigur í spænsku bikarkeppninni á eftirminnilegan hátt. Hann missti þá bikarinn í sigurgöngunni og rúta Madridarliðins keyrði í kjölfarið yfir bikarinn.

Ekki tókst að laga bikarinn og hefur nú verið ákveðið að geyma laskaða bikarinn á bikarasafni spænska knattspyrnusambandsins.

Bikarinn sem Real geymir er því varabikarinn. Upprunalegi bikarinn verður líklega ekki lagaður enda er hann ansi illa farinn eins og sjá má á myndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×