Fótbolti

Puyol á leið í aðgerð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Carles Puyol.
Carles Puyol. Nordic Photos / Getty Images
Carles Puyol, fyrirliði Barcelona, er á leið í aðgerð vegna meiðslum á hné sem voru honum til vandræða á nýafstöðnu tímabili.

Puyol var til að mynda ekki í byrjunarliði Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu gegn Manchester United um helgina og spilaði aðeins síðustu þrjár mínútur leiksins.

Hann mun því nota sumarið til að koma sér aftur í stand og eru vonir bundnar við að hann verði orðinn klár þegar að nýtt tímabil hefst.

Puyol er 33 ára gamall og hefur unnið allt sem hægt er að vinna með Barcelona og spænska landsliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×