Sport

Ostur örlagavaldur í tennisleik

Arnar Björnsson skrifar
Gael Monfils var orðinn mjög lasinn í annarri hrinu.
Gael Monfils var orðinn mjög lasinn í annarri hrinu. Mynd/AP
Frakkinn Gael Monfils er í 10. sæti á heimslistanum í tennis. Í gær mætti hann Argentínumanninum Juan Monaco í 2. umferð á móti í Madríd.

Monfils kastaði upp fyrir leikinn og eftir að hafa tapað fyrsta settinu 6-3 og var undir 0-3 í öðru settinu gafst hann upp og hélt áfram að æla.  

Skýringin á heilsufari Monfils var einföld.  Hann borðaði pasta fyrir leikinn og í matnum var ostur en Monfils er með ofnæmi fyrir osti.  Osturinn reyndist því örlagavaldur í leiknum í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×