Fótbolti

Ryan Giggs bætti ellimet Inzaghi í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ryan Giggs fagnar hér marki sínu.
Ryan Giggs fagnar hér marki sínu. Mynd/AP
Ryan Giggs skoraði ekki aðeins gríðarlega mikilvægt fyrsta mark í 2-0 sigri Manchester United á Schalke í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld því hann bætti um leið eitt Meistaradeildarmet og jafnaði annað.

Með því að skora þetta mark á 67. mínútu leiksins varð Ryan Giggs elsti leikmaðurinn til að skora í Meistaradeildinni, 37 ára og 148 daga gamall. Hann bætti þar með met Filippo Inzaghi sem hafði verið 37 ára og 86 daga gamall þegar hann skoraði á sinum tíma fyrir AC Milan.

Giggs jafnaði einnig met Raúl hjá Schalke því þetta er fimmtánda tímabilið í Meistaradeildinni sem Giggs er meðal markaskorara Manchester United.

Ryan Giggs ætlar heldur betur að reynast United-liðinu dýrmætur í Meistaradeildinni í ár því hann lagði upp öll þrjú mörk liðsins í átta liða úrslitunum á móti Chelsea.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×