Fótbolti

Pique tryggði Barcelona sigur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
Barcelona er með átta stiga forystu á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 sigur á Villarreal á útivelli í kvöld.

Þetta var 26. sigur Barcelona í 30 leikjum á tímabilinu en Real Madrid tapaði óvænt fyrir Sporting Gijon fyrr í dag.

Barcelona jók því forystu sína í kvöld og verður það að teljast nánast formsatriði fyrir þetta ógnarsterka lið að vinna spænska meistaratitilinn í vor.

Gerard Pique skoraði eina mark leiksins á 67. mínútu er hann þrumaði knettinum í netið af stuttu færi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×