Fótbolti

Adebayor vill vera áfram hjá Real

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Adebayor fagnar marki í gær.
Adebayor fagnar marki í gær.
Emmanuel Adebayor er hæstánægður í herbúðum Real Madrid og hann vill endilega vera þar áfram en hann er í láni hjá félaginu frá Man. City.

Adebayor var frábær í liði Madrid gegn Spurs í gær og skoraði tvö mörk.

"Ég er virkilega að njóta mín í Madrid. Ég vil spila fótbolta og verð að bíða og sjá hvað gerist," sagði Adebayor.

Man. City keypti Adebayor á 25 milljónir punda frá Arsenal árið 2009.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×