Fótbolti

Mourinho í markinu er starfsmenn Real töpuðu gegn fjölmiðlamönnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mourinho þykir vera ágætur markvörður.
Mourinho þykir vera ágætur markvörður.
José Mourinho, þjálfari Real Madrid, tók sér smá frí frá þjálfun er hann setti á sig markmannshanskana og tók þátt í leik á milli starfsmanna Real Madrid og fjölmiðlamanna í Madrid.

Mourinho þótti sína lipur tilþrif á milli stanganna og þess á milli öskraði hann á liðsfélaga sína líkt og hann væri að spila í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Þrátt fyrir góð tilþrif í markinu fékk Mourinho á sig þrjú mörk og hans lið tapaði leiknum, 3-2.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×