Fótbolti

Benzema með bæði mörkin í sigri Real Madrid

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Kariem Benzema fagnar marki sínu í kvöld.
Kariem Benzema fagnar marki sínu í kvöld. Nordic Photos/Getty Images
Frakkinn Karim Benzema hefur leikið frábærlega að undanförnu og skoraði bæði mörk Real Madrid í sigri liðsins á Hercules í spænsku deildinni í kvöld, 2-0.

Benzema skoraði mörkin á 24. og 56. mínútu en hann hefur alls skorað níu mörk fyrir Real í deildinni í vetur og hafa átta þessara marka komið eftir áramót.

Real er með 70 stig í öðru sæti spænsku deildarinnar og er fjórum stigum á eftir Barcelona sem á leik til góða á morgun gegn Sevilla á útivelli. Fyrr í dag gerðu Almeria og Atletico Madrid 2-2 jafntefli þar sem Sergio Agüero skoraði bæði mörk Madridinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×