Fótbolti

Real Madrid slátraði Malaga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
Cristiano Ronaldo skoraði þrennu er Real Madrid fór hamförum gegn Malaga í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld og vann 7-0 sigur.

Karim Benzema kom Real yfir á 27. mínútu en þeir Angel Di Mario og Marcelo juku forystu liðsins áður en flautað var til hálfleiks.

Ronaldo skoraði sitt fyrsta mark á 51. mínútu og Benzema kom síðan Real fimm mörkum yfir tæpum tíu mínútum síðar.

Ronaldo skoraði svo síðustu tvö mörk leiksins, það fyrra úr víti. Hann er nú búinn að skora 27 mörk í deildinni eða jafn mörg og Lionel Messi, leikmaður Barcelona. Þeir eru langmarkahæstir í deildinni.

Þetta var í fimmta sinn sem Ronaldo skorar þrennu í deildinni en mörkin hans komu öll á 26 mínútna kafla í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×