Innlent

Samfélagsleg ábyrgð komi í stað arðsemi

telja Lífeyrissjóði gegna mikilvægu hlutverki Salvör Nordal og Steingrímur J. Sigfússon voru ræðumenn á aðalfundi Landssamtaka lífeyrissjóða.Fréttablaðið/GVA
telja Lífeyrissjóði gegna mikilvægu hlutverki Salvör Nordal og Steingrímur J. Sigfússon voru ræðumenn á aðalfundi Landssamtaka lífeyrissjóða.Fréttablaðið/GVA

Lífeyrissjóðirnir gegna lykilhlutverki í uppbyggingu íslensks samfélags, sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á aðalfundi Landssamtaka lífeyrissjóða í gær. Ráðherra sagði að sjóðunum bæri til þess siðferðisleg skylda auk þess sem það væri efnahagslega skynsamlegt fyrir þá.

Ráðherra sagði að vel mætti endurskoða þá arðsemiskröfu sem gerð væri til lífeyrissjóða. „Á samfélagslegur ávinningur að fá meira vægi, á að horfa meira til langtíma sjónarmiða og heildarhagsmuna fremur en að leggja kalt mat á arðsemi fjárfestinga í augnablikinu, það mat er mannanna verk,“ sagði ráðherra.

Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, benti á að mikilvægt væri að hreinskiptin umræða um stefnu lífeyrissjóða, hlutverk og starfshætti færi fram, rétt eins og hvatt væri til í umfjöllun um lífeyrissjóðina sem finna má í siðferðishluta skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Salvör er einn höfunda þess hluta.

Í skýrslunni hefði komið fram að stjórnarmenn í lífeyrissjóðum voru beittir þrýstingi af fyrirtækjum, benti Salvör á, og rifjaði upp það sem haft er eftir Gunnari Páli Pálssyni, þáverandi formanni VR, að Bónus-feðgar, Jón Ásgeir Jóhannesson og Jóhannes Jónsson, hafi beitt hann þrýstingi til að selja hlutabréf VR í Icelandair í krafti þess hversu margir starfsmenn Bónuss voru í VR.

Salvör sagði í framhaldinu mjög mikilvægt að standa vörð um sjálfstæði lífeyrissjóðanna. Byggja þyrfti upp traust í samfélaginu og lífeyrissjóðir væru í lykilstöðu til að leiða sáttaferli í samfélaginu.

Steingrímur J. sagði í umræðum í kjölfar erindanna að lífeyrissjóðir mættu gjarnan setja sér siðareglur í fjárfestingum, neita til dæmis að fjárfesta í fyrirtækjum sem veittu háa bónusa. Hann sagði olíusjóðinn norska góða fyrirmynd í þeim efnum.

Salvör ræddi einnig um olíusjóðinn, sem hefur þá stefnu að fjárfesta ekki í Noregi og sagði að ef til vill væri það stefna sem lífeyrissjóðirnir ættu að hafa.

sigridur@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×