Fótbolti

Adebayor fer ekki til Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

José Mourinho, þjálfari Real Madrid, hefur verið að skoða þann möguleika að fá Emmanuel Adebayor frá Man. City. Hann hefur nú nánast gefið upp alla von um að fá framherjann.

"Ég held það séu nánast engir möguleikar á því að hann komi til okkar. Það er ekki hægt að bera saman sögu Real Madrid og Man. City en það er vel hægt að bera saman muninn á þeim fjármunum sem félögin hafa úr að spila," sagði Mourinho.

"Kannski vinnur Man. City ensku deildina. Þess vegna tel ég líklegt að City vilji halda sínum bestu mönnum og kaupi menn sem engum dettur í hug að þeir muni kaupa. Ég tel ekki líklegt að City sleppi Adebayor ári eftir að félagið keypti hann."

Didier Drogba hefur einnig verið orðaður við Madrid en Mourinho segir að þau kaup muni aldrei ganga upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×