Fótbolti

Pato með gegn Man Utd

Elvar Geir Magnússon skrifar
Pato fagnar marki með félögum sínum.
Pato fagnar marki með félögum sínum.

Brasilíumaðurinn Pato æfði með AC Milan í morgun og verður í hópnum á miðvikudaginn þegar liðið leikur gegn Manchester United á Old Trafford.

Pato hefur átt við meiðsli að stríða og lék ekki með í markalausa jafnteflinu gegn Roma um helgina.

Það eru gleðitíðindi fyrir ítalska liðið að Pato sé leikfær en AC Milan mun freista þess að snúa við 3-2 tapi í fyrri leiknum. Hann mun fara í nánari skoðun á morgun og þá kemur í ljós hvort hann geti byrjað leikinn, allavega er ljóst að hann verður til taks á bekknum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×