Danskir Facebooknotendur dreifa mikið af vírusum 16. febrúar 2010 15:50
Danskir Facebooknotendur dreifa slæmum tölvuvírusum einna mest allra í heiminum. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar á vegum vírusvarnafyrirtækisins McAfee.Í frétt um málið á börsen.dk er haft eftir Michael Göttsche forstjóra McAfee Danmark að það geti litið út eins og þverstæða að lítið land eins og Danmörk eyðileggi tölvur um heim allan með vírusum. „Ástæðan er í fyrsta lagi að Danir eru með virkustu notendum Facebook í heiminum," segir Göttsche. „Og í öðru lagi trúum við vinum okkar og kunningjum í blindni þegar þeir setja eitthvað inn á síðurnar okkar."Hinn illvígi Koobface ormur er tekinn sem dæmi en hann hefur herjað mikið á Twitter, MySpace og Facebook. Bandaríkjamenn standa fyrir nær helmingi af útbreiðslu Koobface í heiminum eða 49%. Þjóðverjar koma þar næst á eftir með 9% og Danir eru í þriðja sæti með 7%.Þótt margir Danir noti Facebook eru þeir þó langtum færri en t.d. Bretar þar sem útbreiðsla á tölvuvírusum er mun minni.
Mest lesið Vilja banna farþegum að fá sér þriðja drykkinn á flugvellinum Viðskipti erlent Innlend greiðslumiðlun nauðsynleg til að tryggja þjóðaröryggi Neytendur 2 Guys á Ægisíðu lokað Viðskipti innlent Ríkið greiði of mikið fyrir aðkeypta þjónustu og vörur Viðskipti innlent Bóndi í Borgarfirði keyrði Skoda-bíl yfir milljón kílómetra Samstarf „Oft velur maður frekar það sem maður er góður í“ Atvinnulíf Til skoðunar að selja almenningi bankann Viðskipti innlent Hætta rekstri Súfistans í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ráðin framkvæmdastjóri samstarfs hjá Klöppum Viðskipti innlent Tekur við stöðu framkvæmdastjóra hjá Arango Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja banna farþegum að fá sér þriðja drykkinn á flugvellinum Meta birtir óumbeðnar gervigreindarmyndir af notendum Instagram Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Sjónvarpskóngur allur Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Bölvað basl á Bond Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS TikTok fær síðasta séns fyrir Hæstarétti Ræða samruna Honda og Nissan Bitcoin nær nýjum hæðum vegna Trumps Enn þynnri og samanbrjótanlegur iPhone Vesen á Messenger, Facebook og Instagram Verð á kaffi sögulega hátt Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk Danska ríkið kaupir Kastrup Sjá meira