Fótbolti

Carlos Tevez orðaður við báða spænsku risana

Elvar Geir Magnússon skrifar
Verða Carlos Tevez og Lionel Messi samherjar hjá Barcelona á næsta ári?
Verða Carlos Tevez og Lionel Messi samherjar hjá Barcelona á næsta ári?

Ensku blöðin eru uppfull af allskonar sögum af argentínska sóknarmanninum Carlos Tevez sem virðist vera á leið frá Manchester City. Þrátt fyrir að City vilji halda Tevez er leikmaðurinn ákveðinn í því að yfirgefa félagið þegar félagaskiptaglugginn opnar um áramótin.

Spænsku risaliðin Barcelona og Real Madrid hafa oftast verið nefnd til sögunnar en talið er að þau þurfi að greiða hátt í 50 milljónir punda til að krækja í leikmanninn. Hann hefur skorað 29 mörk í 60 leikjum fyrir City síðan hann kom frá erkifjendunum í Manchester United.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×