Fjörutíu ára ráðgáta loks leyst 1. júlí 2010 01:30 i Asbest var á tímabili víða notað sem byggingarefni, eins og í Lýðveldishöllinni sem reist var í Austur-Berlín en hefur verið rifin. nordicphotos/AFP
Vísindamenn við krabbameinsrannsóknarstöð á Havaí telja sig loks hafa fundið svör við þeirri spurningu hvernig asbest veldur krabbameini. Vitað var fyrir að trefjar úr asbesti drepa frumur, en í fjörutíu ár hafa menn reynt að finna út hvernig þetta gæti valdið krabbameini því dauðar frumur ættu ekki að geta vaxið og myndað æxli. Rannsóknir vísindamannanna leiddu í ljós að asbestið drepur frumur með því að koma af stað vefjadrepi í frumum sem um leið leysir úr læðingi tiltekna prótínsameind, sem nefnd er HMGB1. Hún framkallar bólguviðbrögð sem valda fyrir sitt leyti stökkbreytingum og fleiri þáttum sem örva krabbameinsvöxt. Það voru þau Haingin Yang og Michele Carbone, sem stýrðu rannsóknunum. Niðurstöður þeirra eru birtar í tímariti Vísindaakademíu Bandaríkjanna, Proceedings of the National Academy of Sciences. Talið er að tugir milljóna manna þjáist af krabbameini eftir að hafa komist í snertingu við asbest. - gb
Erlent Mest lesið Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Erlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Fleiri fréttir Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Sjá meira