Sport

Favre tapaði í endurkomuleiknum - meistararnir of sterkir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Favre yfirgefur svæðið eftir leik í gær ásamt eiginkonu sinni, Deanna. Sérstaka athygli vekur að hann er ekki með nema fjóra pizzukassa. Menn verða víst að næra sig.
Favre yfirgefur svæðið eftir leik í gær ásamt eiginkonu sinni, Deanna. Sérstaka athygli vekur að hann er ekki með nema fjóra pizzukassa. Menn verða víst að næra sig.

Boltinn byrjaði að rúlla í NFL-deildinni í amerískum fótbolta í nótt. Opnunarleikurinn var af dýrari gerðinni en Brett Favre og félagar hans í Minnesota Vikings sóttu þá meistara New Orleans Saints heim.

Rétt eins og í undanúrslitum deildarinnar í fyrra lutu Favre og félagar í gras. Að þessu sinni, 14-9.

Drew Brees, leikstjórnandi Saints, átti fínan leik. Kláraði 27 af 36 sendingum sínum í leiknum. Ein sendingin skilaði snertimarki en alls kastaði Brees boltanum 237 metra.

Vörn Saints gerði síðan vel í því að halda hinum feruga Favre í skefjum. Hann kastaði aðeins 171 metra í leiknum. Ein sending endaði með snertimarki og hann kastaði einum bolta í hendur andstæðinganna.

Vikings leiddi 9-7 í hálfleik en sóknarleikur liðsins var slakur í síðari hálfleik. Favre er nýbyrjaður að æfa aftur og virkaði ryðgaður.

"Ég fékk um fjórum sinnum gott tækifæri til þess að finna félaga mína en kastaði illa. Það er ekkert meira um það að segja," sagði Favre eftir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×