Fótbolti

Torres byrjar í kvöld

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fernando Torres fagnar marki.
Fernando Torres fagnar marki. Nordic Photos / Getty Images

Roy Hodgson, stjóri Liverpool, hefur staðfest að Fernando Torres verði í byrjunarliði Liverpool þegar að liðið mætir Utrecht í Evrópudeild UEFA í kvöld.

Torres hefur yfirleitt verið hvíldur í Evrópukeppninni en leikurinn í kvöld er þar að auki merkingarlaus þar sem Liverpool er þegar komið áfram í 32-liða úrslit keppninnar.

En Torres hefur ekki náð að skora í síðustu fjórum leikjum sínum. „Þetta er gott tækifæri fyrir hann," sagði Hodgson. „Ég ræddi við Fernando og ég held að hann muni njóta þess að spila. Ég vona að það gangi vel og að ég geti skipt honum út af áður en leiknum lýkur."

„Hann vill gjarnan fá að spila og þar sem David Ngog er ekki leikfær tel ég tilvalið að nota hann."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×