Tónlist

Myndband Berndsen á kvikmyndahátíðina í LA

Davíð og Helgi stefna á að fara til Los Angeles og sýna myndbandið við lagið Super­time. Fréttablaðið/Anton
Davíð og Helgi stefna á að fara til Los Angeles og sýna myndbandið við lagið Super­time. Fréttablaðið/Anton

„Það var hringt í leikstjórann og beðið um að fá að sýna myndbandið. Svo fórum við að skoða hvað var hátíðinni og þá voru þar risanöfn. Ég var bara sjitt! - fékk sjokk þegar ég sá þau," segir söngvarinn Davíð Berndsen.

Myndbandið við Supertime, lag Berndsens, hefur verið valið til sýningar á kvikmyndahátíðinni Los Angeles Film Festival í júní. Hátíðin er ein sú stærsta í heiminum sem sýnir óháðar myndir, en á hátíðinni er sérdagskrá helguð tónlistarmyndböndum. Berndsen er þar í fríðu föruneyti því myndbönd Bobs Dylan og hljómsveitanna MGMT og Coldplay eru í sama flokki.

Myndbandinu var leikstýrt af Helga Jóhannssyni og hefur hann verið beðinn um að mæta á hátíðina og taka þátt í pallborðsumræðu um myndbandið og framleiðslu þess.

„Við stefnum báðir að því að fara á hátíðina, ef kreppan nær ekki að koma í veg fyrir það," segir Berndsen og bætir við að um góða kynningu sé að ræða þar sem um 80.000 gestir séu væntanlegir á hátíðina.

Myndbandið við Supertime hefur vakið talsverða athygli síðan það var frumsýnt í ágúst í fyrra. Myndbandið hefur verið skoðað um 250.000 sinnum á Youtube og fylgdi einnig með snjóbrettamyndinni The Came From sem hefur verið dreift víða um heim.

- afb

Myndbandið má sjá hér á YouTube.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.