Tónlist

Ís­land á fyrra undanúrslitakvöldi Euro­vision

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Hera kom, sá og sigraði Söngvakeppnina í fyrra en enn á eftir að krýna sigurvegara þessa árs og fulltrúa Íslands í Eurovision.
Hera kom, sá og sigraði Söngvakeppnina í fyrra en enn á eftir að krýna sigurvegara þessa árs og fulltrúa Íslands í Eurovision. Vísir/Hulda Margrét

Ísland mun stíga á svið á fyrra undanúrslitakvöldinu í Eurovision í ár, þriðjudagskvöldið 13. maí. Dregið var um það í dag í hvaða undanúrslit keppendur landanna munu keppa í og auk þess var dregið um fyrri og seinni helming kvöldsins.

Ljóst er eftir dráttinn að fulltrúi Íslands mun stíga á svið fyrri hluta kvöldsins. Svíþjóð og Noregur voru bæði á meðal þeirra Norðurlanda sem dregin voru til þess að keppa saman kvöld og Ísland. Þá var einnig dregið um það í hvorum undanúrslitinum fimm stóru löndin sem leggja keppninni mesta fjármuni fá að greiða sín atkvæði í. Sviss, sem sigurvegari í fyrra og Ítalía og Spánn fá að kjósa í riðli Íslands. Dregið verður síðar um nákvæma röð keppenda í undanúrslitunum.

Eins og alþjóð veit á Ísland enn eftir að velja sér fulltrúa. Það verður gert í Söngvakeppninni sem fram fer þrjár helgar í röð í febrúar, fyrri undanúrslit þann 8. febrúar og þau síðari þann 15. febrúar. Úrslitin verða svo þann 22. febrúar og í þetta skiptið er úrslitaeinvígið svokallaða á bak og burt og stigafjöldi símaatkvæða og dómnefnda ræður úrslitum.

Dregið var um röðina á sérstökum viðburði í dag þar sem skipuleggjendur keppninnar í Malmö í fyrra afhentu skipuleggjendum í Basel skipulagningu keppninnar formlega. 

Fyrra undanúrslitakvöldið 13. maí.



Seinna undanúrslitakvöldið 15. maí.
Bretland, Ítalía, Frakkland, Spánn og Þýskaland komast sjálfkrafa í úrslit auk sigurvegara ársins í fyrra. Íbúar þar fá samt að kjósa á sitthvoru kvöldinu og var dregið um það hvaða kvöld það er.

Tveir sigurvegarar gætu keppt sama kvöld og Ísland

Svo gæti farið að tveir fyrrverandi Eurovision sigurvegarar muni stíga á svið á sama kvöldi og Ísland keppir. Það yrði annars vegar Mans Zelmerlow fyrir hönd Svíþjóðar fari svo að hann beri sigur úr býtum í sænsku undankeppninni Melodi Festivalen en hann kom, sá og sigraði Eurovision árið 2015 með Heroes. Hann snýr nú aftur í undankeppni með lagið Revolution en enn á eftir að svipta hulunni af laginu.

Það yrði svo hinsvegar Bobbysocks fyrir hönd Noregs en tvíeykið tók síðast þátt í keppninni fyrir fjörutíu árum síðan. Þá sigruðu þær keppnina með La Det Swinge. Þær munu líklega berjast á banaspjótum í norsku undankeppninni Melodi Grand Prix við glamrokkarana í Wig Wam sem einnig eiga endurkomu í keppnina.

Þeir voru fulltrúar Noregs árið 2005 með lagið In My Dreams og slógu gjörsamlega í gegn á Íslandi og stigu meðal annars á svið í Smáralind í Kópavogi sama ár. Úrslit norsku undankeppninnar fara fram 15. febrúar en Svíar velja sér sinn fulltrúa þann 8. mars næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.