Fótbolti

Sál Real Madrid fór með Raul

Elvar Geir Magnússon skrifar
Meistari Raul, gulldrengurinn, er mættur til Schalke.
Meistari Raul, gulldrengurinn, er mættur til Schalke.

Raul, fyrrum fyrirliði Real Madrid, gekk frá vistaskiptum sínum til þýska liðsins Schalke á dögunum.

„Maður gapir yfir leikmönnum eins og Raul. Sextán ár í treyju Real Madrid, 323 mörk í 741 leik," segir Francesco Totti, miðjumaður Roma, á bloggsíðu sinni.

„Burt séð frá því að hann var einn besti leikmaður spænska boltans þá var hann sál Real Madrid. Ég hef alltaf dáðst að honum. Hann er frábær leikmaður, hann gat leyst allar stöður og var fæddur markaskorari."

„Leikmenn eins og hann eru ekki á hverju strái og það er ástæða þess að ég vill heiðra hann," segir Totti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×