Hætta flugi milli Akureyrar og London vegna eldgossins 23. maí 2010 13:43
Iceland Express hefur ákveðið að hætta við reglubundið flug milli Akureyrar og London, sem vera átti í sumar, þar til næsta ár. Ástæða þess er sú, að dregið hefur úr eftirspurn eftir ferðum, bæði hér heima og í öðrum löndum vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. „Þetta er ekki skemmtilegt í ljósi þess, að fyrir gos voru bókanir sem aldrei fyrr og það leit út fyrir besta ferðasumar í sögu lýðveldisins og að fjöldi ferðamanna myndi slá öll met. Ferðaþjónustan hefur verið sú atvinnugrein sem hefur spjarað sig hvað best í umrótinu undanfarin misseri," er haft eftir Matthíasi Imsland, forstjóra Iceland Express, í tilkynningu. Matthías segir ljóst að sumarið í sumar verði ekki sú lyftistöng fyrir þjóðfélagið sem vonast var eftir. Iceland Express hafi því ákveðið að draga úr framboðinu í sumar. „Ég hef hins vegar fulla trú á, að gosið mun hafa mikil og góð áhrif til framtíðar fyrir ferðaþjónustuna og okkur öll," segir Matthías. Fjárhagslegt tjón Iceland Express vegna gossins er mun minna en áður var talið, að því er segir í tilkynningunni.
Eldgos og jarðhræringar Gos á Fimmvörðuhálsi Mest lesið Vaknaði með tíu ósvöruð símtöl og frétti svo af uppsögninni Innlent Gámur fluttur án leyfis eiganda og öllu stolið úr honum Innlent Skilur ekki hægagang dómsmálaráðuneytisins Innlent Alvarlega slasaður eftir mótorhjólaslys Innlent Tvö þúsund skora á Guðrúnu að hætta við brottvísunina Innlent Kirkjan skaðabótaskyld gagnvart Kristni Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Innlent Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Erlent „Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál“ Innlent Fleiri fréttir Tvö þúsund skora á Guðrúnu að hætta við brottvísunina Skilur ekki hægagang dómsmálaráðuneytisins Gámur fluttur án leyfis eiganda og öllu stolið úr honum Syngjandi hundur í Mosfellsbæ Vaknaði með tíu ósvöruð símtöl og frétti svo af uppsögninni Mátti ekki pissa á starfsmann svo hann meig á glugga Alvarlega slasaður eftir mótorhjólaslys Akranesbær í sárum eftir gjaldþrot eins stærsta vinnustaðarins Fimmtán mánaða skilorð fyrir vörslu barnaníðsefnis Kirkjan skaðabótaskyld gagnvart Kristni Tuttugu stéttarfélög skrifuðu undir kjarasamninga Býður þingmönnum að „fá hrollkaldan veruleikan í andlitið“ Slæleg vinnubrögð álagi og tímapressu að kenna Fundu sautján poka af ónýtum kannabisplöntum og úrgangi Sigmundur Davíð þvær hendur sínar af Mannréttindastofnun Íslands Kolbeinn fer ekki fyrir Landsrétt Fulltrúar sérhagsmuna létu formanninn einan um orðið Fólk geti verið með fleiri en einn kynsjúkdóm Skjálfandafljót verði ekki virkjað á næstunni Mikill meirihluti þjóðarinnar styður aðildarviðræður við ESB Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Sjúklingur réðst á lækni sem fær ekki bætur frá ríkinu Lauginni lokað eftir að lögn fór í sundur Gremja vegna golfbíla á meistaramóti Lögreglan kölluð til er hundur lék lausum hala á Reykjanesbrautinni Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Engin gögn bendi til tengsla við Hamas Mikil fjölgun í greiningum á sárasótt og lekanda Leggja til íbúakosningu vegna framkvæmda Carbfix Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Sjá meira