Viðskipti innlent

Hagnaður jókst um 135 prósent

Hagnaður Icelandic Group af reglulegri starfsemi fyrir skatta var rúmir 2 milljarðar króna á fyrri hluta þessa árs. Rekstrarhagnaður jókst um 20 prósent og var 4,1 milljarður. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri Icelandic.

Hagnaður fyrir skatta jókst um 135 prósent milli ára þrátt fyrir að árið 2009 hefði verið besta ár í sögu félagsins. Icelandic Group er alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki og eitt það stærsta sinnar tegundar í heiminum. Stór hluti íslenskra sjávarafurða er seldur af Icelandic.

- mþl










Fleiri fréttir

Sjá meira


×