Skilanefnd Glitnis sendi fimm mál til FME og saksóknara Sigríður Mogensen skrifar 11. febrúar 2010 12:00
Skilanefnd Glitnis hefur hingað til sent fimm mál sem tengjast viðskiptum gamla bankans til Fjármálaeftirlitsins (FME) og sérstaks saksóknara til frekari rannsóknar. Skilanefnd Kaupþings og Landsbankans hafa jafnframt sent gögn og mál frá sér. Í maí 2009 hóf heimsþekkta rannsóknarfyrirtækið Kroll störf fyrir skilanefnd Glitnis. Fyrirtækið hefur víðtæka reynslu af rannsókn afbrota sem tengjast hruni fyrirtækja. Kroll aðstoðar skilanefndina við rannsókn á viðskiptum gamla bankans og er markmiðið að rekja slóð fjármuna, leita uppi og endurheimta eignir, og upplýsa um brot sem kunna að hafa verið framin í tengslum við hrunið. Hlutverk Kroll er að skoða stóru myndina og það sem snýr að viðskiptum sem ná út fyrir landssteinana. Samkvæmt heimildum fréttastofu er hefur skilanefnd Glitnis hingað til sent fimm mál sem tengjast viðskiptum gamla bankans til FME og sérstaks saksóknara til frekari skoðunar. Í fjölmiðlum hefur komið fram að málefni eignarhaldsfélagsins Stím séu til rannsóknar, þar sem grunur leikur á markaðsmisnotkun en félagið keypti hlut í Glitni rétt fyrir hrun. Stím-málið var eitt fyrsta málið sem tengt er meintum óeðlilegum viðskiptum sem rataði í fjölmiðla eftir hrunið. Hjá öllum skilanefndunum starfa löggiltir endurskoðendur sem kafa ofan í einstök mál sem tengjast bankahruninu. Mun skilanefnd Landsbankans hafa sent nokkur mál til Fjármálaeftirlitsins sem hún telur að þarfnist frekari skoðunar. Skilanefnd Kaupþings hefur jafnframt sent gögn í ýmsum málum til frekari rannsóknar eða skoðunar hjá yfirvöldum, samkvæmt heimildum. Þá hafa allar skilanefndirnar aðstoðað Rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið við upplýsingaöflun um starfsemi gömlu bankanna.
Stím málið Mest lesið „Ég var búinn að heyra stríðssögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“ Atvinnulíf Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Viðskipti innlent Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Atvinnulíf Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Viðskipti innlent Að nálgast starfsmann sem líður illa, er reiður eða leiður Atvinnulíf Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Viðskipti innlent Úr boltanum í tryggingarnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Reitir hrista upp í skipuritinu Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Sjá meira