Fótbolti

Mascherano segist ekki vera grófur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Javier Mascherano, leikmaður Barcelona, hefur fengið einhverjar sneiðar í spænskum fjölmiðlum sem sumir hverjir hafa kallað hann grófan leikmann.

Mascherano hefur alltaf verið harður í horn að taka og neitar því að hann sé grófur.

"Dómararnir á Spáni leyfa minna en á Englandi. Barcelona er síðan lið sem spilar öðruvísi bolta en ég á að venjast en það mun koma," sagði Mascherano.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×