Fótbolti

Gerrard og Torres fara ekki með til Napoli

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Roy Hodgson, stjóri Liverpool, heldur sig við þann sið að hvíla lykilleikmenn í Evrópudeildinni og hann hefur ákveðið að skilja þá Steven Gerrard og Fernando Torres eftir er liðið fer til Napolí.

Liverpool er að sjálfsögðu í bullandi vandræðum í ensku úrvalsdeildinni og þarf sárlega á jákvæðum úrslitum að halda gegn Blackburn um helgina.

Glen Johnson missir einnig af ferðinni til Ítalíu þar sem hann er meiddur. Daniel Agger er lasinn en landi hans, Christian Poulsen, er klár í slaginn sem hlýtur að vera gleðiefni.

Skoski unglingalandsliðsmaðurinn Danny Wilson fær því líklega tækifæri í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×