Fótbolti

Gerrard hvíldur í Evrópudeildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gerrard getur einbeitt sér að fyrirsætustörfum á fimmtudag ef hann vill.
Gerrard getur einbeitt sér að fyrirsætustörfum á fimmtudag ef hann vill.

Steven Gerrard mun ekki spila með Liverpool í Evrópudeildinni gegn Utrecht. Leikmaðurinn verður hvíldur og fór því ekki með liðinu til Hollands.

Daniel Agger fór heldur ekki með til Hollands en það gerði Fernando Torres enda veitir honum ekki af leikæfingunni.

Þetta verður sérstakur leikur fyrir Dirk Kuyt sem lék á sínum tíma í fimm ár með Utrecht áður en hann gekk í raðir Feyenoord.

"Þetta er félagið sem gaf mér tækifærið sem ég þurfti og ég naut tímans þar. Ég þekki enn suma starfsmenn þarna og það verður gaman að sjá þá aftur," sagði Kuyt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×