Innlent

Annar maður í haldi vegna morðrannsóknar

Síðdegis í dag var maður handtekinn í tengslum við rannsókn á andláti Hannesar Þórs Helgasonar og færður til yfirheyrslu samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Að yfirheyrslum loknum nú í kvöld var ákveðið að láta hann ekki lausan vegna gruns um aðild hans að andlátinu.

Ákvörðun um hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir manninum, sem er á þrítugsaldri, verður tekin á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×