Fótbolti

Ribery vill ekki fara frá Bayern

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Franck Ribery í leik með Bayern München.
Franck Ribery í leik með Bayern München. Nordic Photos / Getty Images
Franck Ribery segist engan áhuga hafa á því að yfirgefa herbúðir Bayern München og að hann hafi ekki sóst eftir því að hann verði seldur til Real Madrid.

Ribery hefur verið sterklega orðaður við Real í sumar og forráðamenn Bayern hafa staðfest að þeir hafi hafnað tilboðum frá Barcelona, Manchester United og Chelsea í kappann.

Fjölmiðlar í Þýskalandi hafa fullyrt að Ribery sé óánægður hjá Bayern og vilji fara frá Þýskalandi.

„Ég hef aldrei sagt að ég vilji fara frá Bayern," sagði hann í samtali við fjölmiðla í Þýskalandi. „Ef ég hefði viljað fara hefði ég tilkynnt það. Ég hef aldrei sagt neitt um málið og þess vegna fer öll fjölmiðlaumfjöllunin í taugarnar á mér."

„Ég get ekkert gert þótt önnur félög leggja fram tilboð í mig. En ég er enn hjá Bayern og verð það áfram."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×