Lífið

Fagurkerar bíða skipbrot eftir góðærið

Sorglegt Arnar Gauti og Nadia Banine segja það vera sorglegt að sjá á eftir Habitat og Saltfélaginu.
Sorglegt Arnar Gauti og Nadia Banine segja það vera sorglegt að sjá á eftir Habitat og Saltfélaginu.

„Maður er eiginlega bara skelfingu lostin, ekkert annað. Þetta er mjög slæmt fyrir fólk í mínum bransa,“ segir Jóhanna Kristín Ólafsdóttir, innanhússarkitekt hjá AVH. Í fréttum Sjónvarpsins á fimmtudagskvöld var greint frá því að lífsstíls- og hönnunarbúðinni Saltfélaginu hefði verið lokað og að til stæði að loka Habitat sem löngum hefur verið þekkt fyrir smekklegar innanhússvörur.

„Ég myndi nú kannski ekki segja að góðærinu væri formlega lokið. En vissulega á þetta eftir að gera fagurkeranum erfitt fyrir að nálgast flottar hönnunarvörur,“ segir Arnar Gauti Sverrisson, framkvæmdastjóri GK og fyrrum stjórnandi lífsstílsþáttarins Innlit/útlit. Hann viðurkennir hins vegar að þetta hafi kannski verið komið út í svolítið rugl, sér í lagi verðið. Í sama streng tekur fyrrum samstarfskona hans, Nadia Banine. „Það er alltaf sorglegt þegar maður hefur úr minna að velja. Saltfélagið hefur verið svolítið sér á báti með sínar vörur en það að verið sé að loka Habitat er skelfilegt. Þar var hægt að nálgast mjög smekklegar vörur á viðráðanlegu verði,“ segir Nadia. „Vonandi verður þetta hins vegar til þess að fólk líti sér nær og versli jafnvel frekar íslenska hönnun.“

Eyjólfur Pálsson, forstjóri Epal, hefur starfrækt sína verslun í yfir þrjátíu ár. Og ekki er að sjá að það sé neitt fararsnið á honum þrátt fyrir erfitt árferði. Eyjólfur segist hóflega bjartsýnn á framhaldið. „Við höfum nánast aldrei greitt út arð í þessu fyrirtæki, höfum eytt öllum okkar peningum í fyrirtækið og hönnunina. Auðvitað er það sorglegt ef það fækkar aðilum í þessum bransa, maður getur bara ekkert annað sagt.“- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.