Viðskipti innlent

Bréf Century Aluminum féll um 26 prósent í dag

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, féll um 26 prósent í fjórum viðskiptum upp á tæpar 40 þúsund krónur. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum um 4,24 prósent.

Þá hækkaði gengi bréfa í Straumi um 0,56 prósent og Össuri um 0,32 prósent.

Bréf Færeyjabanka lækkaði sömuleiðis um 1,48 prósent og Marel Food Systems um 0,1 prósent.

Gamla Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,22 prósent og endaði í 284 stigum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×