Viðskipti innlent

Gengi bréfa Marel Food Systems féll um fimm prósent

Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems féll um fimm prósent í Kauphöllinni í dag en það er mesta lækkun dagsins. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Össurar um 0,77 prósent. Hins vegar skaust gengi bréfa Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, upp um 11,33 prósent.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 0,61 prósent og endaði í 221 stigi. Nýja vísitalan (OMXI6) lækkaði um 0,9 prósent á sama tíma og endaði í 647 stigum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×