Fótbolti

Ari og Hannes á skotskónum í markaleik

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ari Freyr Skúlason.
Ari Freyr Skúlason.

Íslendingaliðið Sundsvall vann ótrúlegan 6-4 sigur á Jönköping í B-deild sænska boltans í gærkvöldi. Sundsvall er í fimmta sæti deildarinnar þegar fimmtán umferðum er lokið.

Ari Freyr Skúlason skoraði fyrsta mark leiksins og Hannes Þ. Sigurðsson skoraði tvívegis eftir að hafa komið inn sem varamaður þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum.

Staðan var 3-2 þegar Hannes kom inn en aðeins mínútu eftir að hafa komið inná skoraði hann. Hann skoraði síðan síðasta mark leiksins í viðbótartíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×