Fótbolti

Sigrar hjá Margréti og Dóru

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Margrét Lára Viðarsdóttir.
Margrét Lára Viðarsdóttir. Mynd/Hörður

Lið þeirra Margrétar Láru Viðarsdóttur og Dóru Stefánsdóttur náðu bæði að landa góðum sigrum í sænska boltanum í dag.

Lið Margrétar, Linköpings, lagði Kopparbergs/Göteborg, 1-0. Margrét Lára lék  síðustu 20 mínútur leiksins.

Malmö, lið Dóru, vann 1-0 útisigur gegn Hammarby. Dóra kom af bekknum á 65. mínútu.

Linköpings í öðru sæti sænsku deildarinnar en Malmö í því fjórða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×