Einn með 20 milljarða Guðjón Helgason skrifar 9. maí 2009 19:00
Heppnin var með lottóspilara á Spáni sem fékk ríflega 20 milljarða króna í vinning þegar stóri potturinn í Evrópulottóinu kom á einn miða í gærkvöldi. Potturinn í Evrópulottóinu eða Euromillions var 126 milljónir evra eða ríflega 20 milljarðar króna. Vinningurinn er sá stærsti á einn miða í Evrópulottóinu og jafnvel í heimi. Hann kom á miða sem keyptur var í sjoppu í Madrídarborg. Líkurnar á því að vinningurinn kæmi á einn miða voru einn á móti 76 milljónum. Samkvæmt fulltrúum Euromillions gaf vinningshafinn gaf sig fram í dag en nafn hans hefur ekki verið birt. Níu Evrópulönd taka þátt í Evrópulottóinu. Þau eru Austurríki, Belgía, Bretland, Frakkland, Írland, Lúxembúrg, Portúgal, Spánn og Sviss. Stærsti vinningurinn í Euromillions var 183,5 milljón evra eða ríflega 30 milljarða króna á núgengi en hann hrepptu tveir Frakkar og einn Portúgali í febrúar 2006. Næst stærsti vinningurinn sem komið hefur á einn miða var 115 milljónir evra eða rúmir 19 milljarðar króna á núgengi. Hann kom í hlut Doris McNamara á Írlandi í júní 2005. Óvíst er að vinningshafinn á Spáni gefi sig fram í ljósi lífreynslu hennar. Heimili McNamara-fjölskyldunnar var umkringt af fjölmiðlamönnum í margar vikur eftir að upplýst var hver hefði fengið vinninginn. Að lokum fluttu Dolores og fjölskylda úr látlausu einlyftu íbúðarhúsi sínu í nærri 600 fermetra hús á hæð í írsku þorpi fjarri öllum skarkala. Þau létu setja upp girðingar og öryggiskerfi enda hafði margsinnis verði hótað að ræna einhverjum úr fjölskyldunni enda ætti Dolores ekki að reynast erfitt að borgar lausnargjald.
Erlent Fréttir Mest lesið Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Innlent Fleiri fréttir Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað Sjá meira