Fótbolti

Pabbi Kaka: Hann fer til Real Madrid

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kaka í leik með AC Milan.
Kaka í leik með AC Milan. Nordic Photos / AFP

Haft var eftir Bosco Leite, föður og umboðsmanni Brasilíumannsins Kaka hjá AC Milan, að leikmaðurinn muni ganga til liðs við Real Madrid þegar að Florentino Perez tekur við embætti forseta félagsins í sumar.

Þetta kemur fram í bæði spænskum og ítölskum miðlum í dag. Talið er líklegt að Perez muni senn fara í viðræður við forráðamenn Milan, þá Adriano Gallini varaforseta og Silvio Berlusconi eiganda félagsins.

Talið er að Milan muni fara fram á 60 milljónir evra fyrir hann en Perez er sagður ætla að reyna að lækka það verð um 10 milljónir evra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×